Dýrðardagar á Húnavöllum
Hvað eru Dýrðardagar og fyrir hverja eru þeir?
Dýrðardagar eru fyrir þá sem vilja hvílast, njóta samveru og byggja sig upp andlega og líkamlega í fallegu og rólegu umhverfi. Dagarnir eru haldnir í annað sinn frá 14. til 19. ágúst á Hótel Húnavöllum, en þar er frábær aðstaða til að slaka á og njóta.
Dagskráin er fjölbreytt, á hverjum degi er boðið upp á göngu eða sund fyrir morgunmat, þá tekur við hugleiðsla og svo einkatímar eða frítími fyrir hádegisverð. Eftir hádegi eru eitt til tvö stutt námskeið og seinnipartinn eru aftur einkatímar eða farið út að njóta náttúrunnar. Farið verður að upplifa náttúruverur í nágrenni hótelsins, í Borgarvirki að hugleiða, og einnig verður farið inn í Vatnsdalshóla þar sem fjallað verður um sögu, jarðfræði og náttúruvætti ásamt því að hugleiða.
Allir þátttakendur fara í heilunartíma sem er innifalinn í verðinu, og svo er fjöldi einkatíma í boði sem greitt er sérstaklega fyrir. Í boði er til dæmis nudd, kristallaheilun, svæðanudd, teiknimiðlun, spámiðlun, hjartaheilun, hrifkjarna tími og fleira.
Dýrðardagar byrja á þriðjudagskvöldi og standa til hádegis á sunnudegi. Þátttaka kostar aðeins 35.000 krónur og er gisting, matur (morgunmatur, hádegisverður og kvöldmatur), dagskráin og heilunartími innifalinn í verðinu. Þátttakendur hafa aðgang að frábærri sundlaug og heitum potti.
Hverjir standa að Dýrðardögum?
Björn Þór hótelhaldari á Húnavöllum og Sandra kona hans höfðu áhuga á að hafa andlega daga á hótelinu og höfðu samband við Hrönn Friðriksdóttur spámiðil, sem tók að sér að halda utan um Dýrðardaga með Ölmu Hrönn dóttur sinni en hún er viðskiptafræðingur, heilari og spámiðill. Hrönn hefur starfað sem spámiðill frá árinu 2000 og heldur ýmis konar námskeið um andleg mál auk þess að halda utan um þróunarhópa. Alma hefur verkefnastjórnun að aðalstarfi en heldur námskeið með Hrönn og vinnur einnig við heilun og spámiðlun.
Nánari upplýsingar er að finna á facebook.com/dyrdardagar, eða í tölvupósti Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og hjá Hrönn í síma 861-2505 eða Ölmu í síma 695-5585.
Ummæli þátttakenda: „Sannkallaðir Dýrðardagar, góður félagsskapur,
skemmtileg samvera og unaðslegt umhverfir“ - „Yndislegir heilarar og yndislegt fólk“
