Það eru til mismunandi gerðir af sígaunaspilum, ég er að nota þessi hefðbundnu sem eru 36 stk en það eru líka til 52 stk. Ég mun nota báðar tegundir á námskeiðinu.
Það sem heillar mig við spilin er hversu einföld þau eru og auðvelt að lesa úr þeim. Sjá má allt í kringum þann sem lesið er fyrir, þá á ég við fjölskyldu, vinnu, fjármál, ástarmál og heilsu. Það er líka auðvelt að nota mismunandi spilalagnir, spyrja spurninga, og eins að lesa heilt ár eða jafnvel lengra fram í tímann.
Námskeiðið er tvisvar, þrjár klukkustundir í senn.
Námskeið
Leit
Innskráning