Draumar
Ég er lengi búin að hafa áhuga á draumum, man t.d. eftir að hafa dreymt mikið sem barn. Ég hef hlustað á drauma mína lengi, bæði fengið viðvörun og eins ef ég hef verið efins um á hvaða leið ég sé, bregst mér ekki að ég fæ leiðsögn í draumi.
Það sem skiptir máli í draumi eru atburaðrrás, nöfn, litir og líðan.
Nauðsynlegt er að skrifa draumana sína niður og best er að hafa stílabók á náttborðinu og skrifa drauminn strax og þú vaknar, meðan hann er ferskur og þú manst allt, það er nefnilega ótrúlegt hvað smáatriðin gleymast fljótt.
Ég ætla að gefa ykkur kost á að senda mér drauma hér á síðunni, en til að gera það farið þið í "spjallið", skráið ykkur inn, veljið flokkar, svo ráðningar og að lokum fáið þið upp síðu til að skrifa þegar þið veljið new thread. Ég lofa ekki að ráða þá alla en ég mun gera mitt besta.