Spilin sem ég nota eru sígauna-, blóma- og tarot-zen spil. Þetta eru mjög ólík spil, enda sé ég misjafnt í þeim.
Blómaspilin segja mér hvernig persónan er sem ég er að spá fyrir, hvaða hæfileika hún hefur og áhugamál.
Zen-spilin segja mér hvernig manneskjunni líður í nútíð og framtíð.
Sígaunaspilin segja mér „allt“ um fjölskyldu, vinnu og ástarmál.
Ég nota kristalskúluna mína til að magna upp sýnir og túlka spilin dýpra. Hún hjálpar mér t.d. að sjá fólkið í lífi þess sem ég er að spá fyrir.
Leit
Innskráning