Dýrðardagar verða haldnir í þriðja sinn 13.-18. ágúst að Húnavöllum. Við höfum fengið frábæran kokk hana Dóru á Culina (áður Á næstu grösum) til að kokka dýrindis krásir fyrir okkur. Dagskráin verður eins og í fyrra, byrjar á þriðjudegi og endar um hád. á sunnudegi. Breyting er að fólk fær kjarngóða kjötsúpu og brauð á þriðjudeginum þegar það kemur milli 18.00-19.45. Verð fyrir Dýrðardaga er aðeins 38.000, innifalið í þeim pakka er einn heilunartími, gisting í svefnpokaplássi í tveggja manna herbergi, kvöldmatur þriðjudag, morgunmatur, hádegisverður og kvöldmatur miðvikudag til laugardags og morgunmatur á sunnudeginum. Dagleg ganga eða sund, hugleiðsla, námskeið og fræðslustundir eftir hádegi alla daga og farið verðu að upplifa álfa og aðrar náttúruverur við Húnavelli og farið í Borgarvirki að hugleiða.
Þátttakendur hafa frían aðgang að íþróttaaðstöðu og sundlauginni á staðnum. Dýrðardagar standa frá þriðjudagseftirmiðdegi til hádegis á sunnudag.
Ég hef verið veik, fékk slæma felnsu og lungnabólgu. Ég er að hressast og fer að vinna á morgun. Ég veit að margir eru búnir að bíða ansi lengi eftir tíma hjá mér, takk fyrir þolinmæðina.
Það getur hjálpað okkur mikið í lífinu að geta lesið í drauma okkar. Við þurfum að læra að túlka þá því fáum dreymir berdreymni. Ef við erum undir álagi eða stress mikið getur okkur dreymt erfiða og hraða drauma sem eru endemis vitleysa, ekki hægt taka mikið mark á þeim. Atburðarás í draumi skiptir miklu máli til að vel sé hægt að lesa úr þeim, eins geta smáatriði skipt máli. Það er því nauðsynlegt að skrifa drauminn eins nákvæmlega niður eins og þið munið þá og best er að skrifa þá strax niður, þegar þeir eru ferskir í minni. Gott að hafa bók eða blað við rúmið. Hver og einn þarf að læra að lesa úr sínum draumatáknum, sami hluturinn getur þýtt mismunandi. Ég ætla að gefa dæmi: nafnið Guðrún er talið gott í draumi en ein sem ég þekki segir að ef henni dreymi konu sem heitir Guðrún veit hún að það boði erfiðleika fyrir sig. Það skiptir því máli að skrifa draumana niður og læra að lesa í táknin.
Draumar eru leið sálarinnar til að segja okkur á hvaða leið við erum í lífinu og benda okkur á hvað við getum gert betur eða hvað okkur ber að varast. Ég hef haft áhuga á draumum síðan ég var unglingur og fann fljótt út að þeir merktu eitthvað fyrir mig. Ég hef æ síðan hlustað á drauma mína. Ég á þrjú börn, mig dreymdi allaf um kyn barnana og líka hvernig fæðingin mundi ganga, það hjálpaði mér mikið í síðustu fæðingu, því ég vissi að hún mundi ganga erfiðlega en það mundi enda vel, sem það og gerði.
Ég vil biðja ykkur að skrifa draumana eins nákvæma og hægt er. Í draumi dagsins segir dreymandinn vel frá, segir frá líðan sinni í draumnum eins og að lýsa vel bæði atburðarás og umhverfi.
Draumar geta verið dásamlegt ferðalag sem yljar okkur í hversdagsleikanum. Stundum dreymir mig fallega drauma og vakna upp úr þeim. Ég næ oftast að sofna aftur ákveðin í að halda áfram með drauminn og það tekst oftast, merkilegt nokk.
Það sem ég er að segja með þessu er að hvetja ykkur til að taka eftir draumum ykkar, skrifa þá niður, helst í sömu bókina svo þið getið lært að lesa í draumatáknin ykkar. Það er líka bara gaman að fletta bókinni og lesa draumana löngu seinna og skilja samhengið. Góða drauma kæru lesendur.
Einn lesandi skrifar að sér hafi lengi dreymt dalinn sem hún bjó í til 7 ára aldurs. Í draumum erum við oft á sama stað og finnst að við dreymum svipaða hluti en það er ekki svo, þó svo við séum á sama stað. Það er um að gera að skrifa draumana niður, því smáatriði og atburðarás segja svo mikið. Eins er líðan og umhverfi mikilvægt. Okkur dreymir sjaldnast nákvæmlega eins drauma nema um martraðir sé að ræða. Þegar okkur er að dreyma gamla daga eins og þessum dreymanda, ættum við að taka sérstaklega vel eftir, það eru oftast persónuleg skilaboð frekar en að það snúist um vinnu, vini eða þjóðfélagið.
Ég óska þér gleðilegra jóla og að þú njótir þín í rólegheitum í þeirri dásamlegu orku sem kom til okkar þann 21. desember. Megi ást, friður, hamingja og gleði umvefja þig á komandi ári.
Hægt er að fá gjafabréf í einkatíma hjá mér, ég er einnig með til sölu Englaspilin og Englatarotspilin hennar Doreen Virtue, Zen tarotspil og Sígaunaspil, ég á tvenn englaspil með ísl. þýðingu. Ég er einnig með til sölu úrval af orkuseinum bæði erlendum og íslenskum, af þeim ísl. er ég með Jaspis, Ópal, Baggalút, Silfurberg, Agat, Kalsedon og Onyx.
Við Alma verðum ekki með námskeið frá áramótum fram á vor vegna anna nema englaspilanámskeið sem við höldum þegar næg þátttaka verður. Ef þú hefur áhuga er best að senda mér póst á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða hringja í síma 861-2505. Ég mun ekki byrja með nýja þróunarhópa um áramót, ég er með 5 hópa í vetur, en ef þú hefur áhuga hafðu þá samband við mig, þú getur skráð sig á biðlista fyrir næsta haust og tryggt sér sæti.
Njóttu þín á aðventunni og ég óska þér og þínum gleðilegra jóla
Eins og sumarið er yndislegt er haustið alltaf spennandi tími þar sem margt fer af stað. Hér er það sem er á dagskrá hjá okkur mæðgum þetta haustið:
8.-9. sept. Heimsljós hátíðin í Mosfellsbæ - kynningar og fyrirlestrar Hrönn verður með umfjöllun um þróunarhópa kl. 14 á laugardag og Alma fyrirlestur um orkusteina fyrir hjartastöðina kl. 15 á laugardag sjá nánar á http://www.heimsljos.is/
11. og 13. sept. Þróunarhópar byrja 8. og 13. okt. Að lesa úr spilum - Reykjavík 22. sept. Að lesa úr spilum - Hveragerði 24. sept. og 15. okt. Englaspilanámskeið - Reykjavík 6. okt. Að lesa úr spilum - Þorlákshöfn 20. okt. Orkusteinanámskeið - Selfoss 5. nóv. Orkusteinanámskeið - Reykjavík
Nánari upplýsingar um námskeiðin eru hér fyrir ofan undir flipanum námskeið og á facebook spámidill og námskeið (facebook.com/spamidill)
Sími hjá Hrönn er 861-2505 og tölvupóstur
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Dýrðardögum var ljúka, þeir tókust vonum framar og við Alma erum djúpt snortnar og þakklátar. Við viljum þakka öllu því fólki sem var að vinna og njótameð okkur.
Ég er á leið hringinn í kringum landið til að bjóða upp á einkatíma , selja orkusteina og englaspilin hennar Doreen Virtue, athugið það þarf að hringja í mig og mæla sér mót til að kaupa spil og orkusteina.
Ég verð á Hornafirði 26.28. ágúst, Eskifirði 29.-30. ágúst, Egilsstöðum 31. ágúst-3. september og Akureyri 4.-7. september.
Tímapantanir í síma 861-2505 og í tölvupósti
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.