Þá er Dýrðardögum á Húnavöllum lokið, þeir tókust framar björtustu vonum og ég hlakka mikið til að takast á við þá að ári. Ég vil þakka öllum þeim sem komu að þessum dögum, bæði þeim sem voru þyggjendur og eins þeim sem voru að vinna.
Ég er á leið á Hamingjudaga á Hólmavík um næstu helgi að vinna, tímapantanir í síma 861-2505.
Heilun Kristbjörg Einarsdóttir og Guðlaugur Ellertsson
Þetaheilun - Kristbjörg Einarsdóttir
Heilun með ilmkjarnaolíum - Margrét Gústafsdóttir
Teiknimiðlun - Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir
Lilja Petra og Elli bjóða upp á eftirfarandi einkatíma:
Shamballa heilun
30 mín., 2.500 kr.
Heilsunudd - Elli
60 mínútna nudd, 4.500 kr.
Hjartaheilun (metahealing) Mögnuð leið til að vinna úr gömlum áföllum sem leitt hafa til líkamlegra einkenna. 60 mín., 4.500 kr.
WHEE –streitu og áfallalosun.
60 mín., 4.500 kr.
Waterfall essences-hrifkjarna tími.
30 mín., 3.500 kr. flaska innifalin.
Bland í poka 90 mínutur: Sameiginlegur tími hjá Lilju og Ella þar sem blandað er saman, heilun, WHEE, hjartaheilun, hbsjöfnun, nuddi og miðlun allt eftir þörfum og óskum skjólstæðings. 7.500 kr.
Gengið á fjallið
Við Húnavelli eru fjölmargar gönguleiðir á fjöllin í kring. Þú getur slegist í för með Lilju á eitt af þeim eða fleiri og litið í leiðinni á söguna, gróðurinn og frumkraftana sem alls staðar eru að verki. 700 kr.
Englaspilin eru einstaklega jákvæð spil sem gott er að nota fyrir okkur sjálf, hvort sem dregið er eitt spil fyrir daginn eða lagðar lagnir til frekari leiðbeiningar. Spilin eru frábær til að skoða andlega og líkamlega líðan, eins til að skoða sambönd og tengsl við annað fólk. Hægt að nota englaspilin til að spyrja ýmislegra spurninga sem hvíla á okkur. Við byrjum á að kynna mismunandi spil og munum svo í litlum hópum nota þrjár mismunandi lagnir til að skoða hvernig hægt er að nota englaspil dags daglega til leiðbeiningar fyrir okkur sjálf.
Þátttakendur mega gjarnan koma með eigin englaspil en við erum með nokkuð úrval af spilum sem hægt er að fá lánuð. Við notum spil sem Doreen Virtue hefur gert. Hægt er að kaupa spil hjá okkur með íslenskri þýðingu.
Námskeiðið kostar 6.000 kr. á Dýrðardögum (venjulegt verð er 7.900).
Orkusteinar
Orkusteinar geta hjálpað okkur mikið í daglegu lífi. Þeir geta róað okkur, byggt upp tilfinningar, gleði og kærleik. Einnig verndað okkur fyrir rafbylgjum og öðru í umhverfinu, hjálpað okkur að vera skipulögð og að jarðtengja.
Á námskeiðinu er unnið með steina fyrir hverja orkustöð. Valdir verða sjö steinar sem hjálpa okkur m.a. að takast á við streitu, byggja upp orkustöðvarnar, opna okkur tilfinningalega og bæta vernd gegn áreiti í umhverfinu.
Steinarnir eru innifaldir í námskeiðinu.
Námskeiðið kostar 7.000 kr. á Dýrðardögum (venjulegt verð er 8.500).
Námskeið um íslenskar jurtir
Á fyrri hluta námskeiðsins ætla ég að fjalla um algengustu íslensku jurtirnar og virkni þeirra, ásamt því að segja aðeins frá álfunum mínum og hvernig við vinnum saman við að tína og vinna jurtirnar sem ég nota. Á seinni hluta námskeiðsins bregðum við okkur svo út í náttúruna í jurtaskoðun.
Ég verð starfandi á kærleiksdögum á Núpi í Dýrafirði 10.-16. Júní. Við Alma verðum þar með orkusteinanámskeið 10. Júní kl. 16.00-19.00 og Englaspilanámskeið 13. Júní kl. 14.00-17.00, sjá um námskeiðin hér á síðunni undir námskeið.
Dýrðardagar á Húnavöllum:
Þarftu á andlegri hvíld og uppbyggingu að halda? Við ætlum að eiga dásamlega 5 daga saman í fallegu og rólegu umhverfi með frábæru fólki. Í boði er fjölbreytt og fræðandi dagskrá 19.-24. júní á Húnavöllum.
Dýrðardagar eru fyrir alla þá sem vilja byggja sig upp andlega og fræðast um andleg mál í rólegu og góðu umhverfi. Boðið er upp á hugleiðslu eða kraftgöngu á hverjum morgni og samverustund seinnipartinn þar sem fjallað er um mismunandi efni. Einnig verður farið í göngu að skoða álfa og aðrar náttúruverur, ferð til að skoða sólarlagið/upprás og einn heilunartími er innifalinn í þátttökugjaldinu. Það verða þrjú námskeið í boði og fjölbreyttir einkatímar t.d. hjá spámiðli, í dáleiðslu, höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun (cranio), teiknun leiðbeinenda, þetaheilun og fleira, það ættu því allir að finna eitthvað við sitt hæfi hvort sem er einkatíma eða námskeið. Greitt er sérstaklega fyrir námskeiðin og einkatímana en allir veita góðan afslátt af sinni vinnu
Hópastarfi vetrarins var að ljúka í þessari viku og erum við á leið í helgarferð á Snæfellsnes að nema þá góðu orku sem þar er. Við ætlum í Djúpalón að hlusta á hafið og handfjatla yndislegu steinana þar, svo róandi. Við munum hugleiða inn á jökulinn og finna þann ógnarkraft sem býr þar, gott að nýta kraftinn inn í sumarið J og auðvitað munum við skoða allar náttúruverurnar sem eru á Snæfellsnesinu. Góða helgi..
Þarftu á andlegri hvíld og uppbyggingu að halda? Við ætlum að eiga dásamlega 5 daga saman í fallegu og rólegu umhverfi með frábæru fólki. Í boði er fjölbreytt og fræðandi dagskrá 19.-24. júní á Húnavöllum.
Einnig er hægt að fá upplýsingar í tölvupósti:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
og í síma 773-4685 Alma.
Dýrðardagar eru fyrir alla þá sem vilja byggja sig upp andlega og fræðast um andleg mál í rólegu og góðu umhverfi. Boðið er upp á hugleiðslu eða kraftgöngu á hverjum morgni og samverustund seinnipartinn þar sem fjallað er um mismunandi efni. Einnig verður farið í göngu að skoða álfa og aðrar náttúruverur, ferð til að skoða sólarlagið/upprás og einn heilunartími er innifalinn í þátttökugjaldinu. Það verða þrjú námskeið í boði og fjölbreyttir einkatímar t.d. hjá spámiðli, í dáleiðslu, höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun (cranio), teiknun leiðbeinenda, þetaheilun og fleira, það ættu því allir að finna eitthvað við sitt hæfi hvort sem er einkatíma eða námskeið. Greitt er sérstaklega fyrir námskeiðin og einkatímana en allir veita góðan afslátt af sinni vinnu
Við Alma verðum með námskeið að lesa úr spilum mánud. 2. maí kl. 19.-22.00 og laugard. 7. maí kl. 11.00-14.00. Námskeiðið er í samstarfi við Mímir símenntun. Upplýsingar á heimasiðu Mímis og hjá mér í síma 861-2505 eða í pósti
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Síðast uppfært (Miðvikudagur, 06. apríl 2011 23:41)