Fyrir fáum mánuðum uppfærðum við heimasíðuna lítillega (eða algerlega). Vegna síaukinnar eftirspurnar ákváðum við að stíga skrefið til fulls og setja upp almennilegt kerfi sem við vonum að ykkur líki vel við.
Við munum á næstunni bæta við ýmsum skemmtilegum eiginleikum sem verður gaman að segja frá þegar þeir koma.
Hugleiðsla gagnast öllum, er áhrifarík gegn streitu og eykur einbeitingu og vellíðan Ég mun leiða hugleiðslu á fimmtudagskvöldum í janúar og febrúar (nema 4. febrúar) kl. 20.00 í Súðarvogi 7, annarri hæð. Ef vel gengur mun ég vera með hugleiðslu fram á vor. Hugleiðslan er 20-25 mínútur og umræður á eftir, alls um 45 mínútur, og kostar 500 kr. Hrönn Friðriksdóttir, spámiðill www.spamidill.com sími 861-2505
Við Alma verðum með Spilanámskeið á mánudag og fimmtudag. Námskeiðið er í samstarfi við Mímir símenntun.Fullt er á það námskeið. 15. feb. verðum við með Orkusteinámsekið sem einnig er í samstarfi við Mími. Nánar um námskeiðin undir flipanum námskeið.
Ég er að mestu búin að skipuleggja starfið fram að sumri. Ég byrja aftur með þróunarhópana 12. og 13. jan. sjá nánar um hópastarfið hér fyrir ofan. Ég og Alma verðum með orkusteina-námskeið (nýtt)og spilanámskeið í samstarfi við Mími símenntun eins og var í haust. Ég hef áhuga á að fara af stað með framhaldsnámskeið í spilalögnum og væri gaman að heyra í ykkur um það.
Við í þróunarhópunum mínum höfuð verð að fjalla um góðverk. Ég sett þeim fyrir að gera góðverk, mikið gekk það vel og allir voru svo ánæðir, því það að gera góðverk kemur margfalt til baka. Nú er að koma þessi vikvæmi tími sem fylgja jólunum, allt á að vera svo gott og fjölskylduvænt. Sumir eru að takast á við veikindi eða sorg. Hlúum að fólki, það kemur svo margfalt til baka. Njótið aðventunnar.
Nú eru allir steinarnnir mínir komnir inn á síðuna. Ég hef átt ánægjulega viku með hópunum mínum og hlakka mikið til vetrarstarfsins með þeim. Góða helgi