20.00 Kynning á dagskrá, námskeiðum og þeim sem vinna
Miðvikudagur til laugardags 15. - 18. ágúst
07.30 Ganga eða sund
08.00 Morgunmatur
09.00 Hugleiðsla
10.00 Einkatímar
12.00 Hádegismatur
13.00 Námskeið/fræðsla
15.00 Einkatímar
19.00 Kvöldmatur
Sunnudagur 19. ágúst
07.30 Ganga eða sund
08.00 Morgunmatur
09.00 Hugleiðsla
10.00 Einkatímar
12.00 Kveðjustund
Námskeið:
Miðvikudagur 15. ágúst
13.00 - 14.00 Orkustöðvarnar - Hrönn
14.00 - 15.00 WHEE streitulosun - Lilja Petra
Fimmtudagur 16. ágúst
13.00 - 14.00 Draumar - m.a. verður fjallað um tákn og skilaboð drauma, þátttakendur eru hvattir til að koma með drauma - Hrönn / Orkusteinar fyrir hjartastöðina - Alma
14.00 - 15.00 Orkusteinar fyrir hjartastöðina / Draumar
Athugið að hvort námskeið er tvisvar þar sem betra er að vinna í smærri hópum.
Föstudagur 17. ágúst
13.00 - 15.00 Jurtatínsla, fjallað verður um nokkrar algengar jurtir og eiginleika þeirra og farið út að týna í seiði - Hrafnhildur Ýr
Laugardagur 18. ágúst
13.00 - 14.00 Englaspil - Hrönn
14.00 - 15.00 Englaspil - Hrönn
Hópnum verður skipt í tvennt þar sem betra er að vinna í smærri hópum.
Farið verður að upplifa álfa og aðrar náttúruverur við Húnavelli, farið verður seinnipartinn, dagurinn ræðst af veðri.
Einnig er áætlað að fara í Borgarvirki og hugleiða þar, þá verður borðað kl. 18 og farið af stað strax eftir kvöldmat.
Lilja Petra býður upp á ferð í Vatnsdalshóla þar sem verður hugleitt, tengt við náttúruvætti og auk þess fjallað um jarðfræði og sögu, þetta er um tveggja tíma ferð og verða tímar til kl. 17 þann daginn, dagurinn ræðst af veðri.
Dýrðardagar eru fyrir þá sem vilja hvílast, njóta samveru og byggja sig upp andlega og líkamlega í fallegu og rólegu umhverfi. Dagarnir eru haldnir í annað sinn frá 14. til 19. ágúst á Hótel Húnavöllum, en þar er frábær aðstaða til að slaka á og njóta.
Dagskráin er fjölbreytt, á hverjum degi er boðið upp á göngu eða sund fyrir morgunmat, þá tekur við hugleiðsla og svo einkatímar eða frítími fyrir hádegisverð. Eftir hádegi eru eitt til tvö stutt námskeið og seinnipartinn eru aftur einkatímar eða farið út að njóta náttúrunnar. Farið verður að upplifa náttúruverur í nágrenni hótelsins, í Borgarvirki að hugleiða, og einnig verður farið inn í Vatnsdalshóla þar sem fjallað verður um sögu, jarðfræði og náttúruvætti ásamt því að hugleiða.
Allir þátttakendur fara í heilunartíma sem er innifalinn í verðinu, og svo er fjöldi einkatíma í boði sem greitt er sérstaklega fyrir. Í boði er til dæmis nudd, kristallaheilun, svæðanudd, teiknimiðlun, spámiðlun, hjartaheilun, hrifkjarna tími og fleira.
Dýrðardagar byrja á þriðjudagskvöldi og standa til hádegis á sunnudegi. Þátttaka kostar aðeins 35.000 krónur og er gisting, matur (morgunmatur, hádegisverður og kvöldmatur), dagskráin og heilunartími innifalinn í verðinu. Þátttakendur hafa aðgang að frábærri sundlaug og heitum potti.
Hverjir standa að Dýrðardögum?
Björn Þór hótelhaldari á Húnavöllum og Sandra kona hans höfðu áhuga á að hafa andlega daga á hótelinu og höfðu samband við Hrönn Friðriksdóttur spámiðil, sem tók að sér að halda utan um Dýrðardaga með Ölmu Hrönn dóttur sinni en hún er viðskiptafræðingur, heilari og spámiðill. Hrönn hefur starfað sem spámiðill frá árinu 2000 og heldur ýmis konar námskeið um andleg mál auk þess að halda utan um þróunarhópa. Alma hefur verkefnastjórnun að aðalstarfi en heldur námskeið með Hrönn og vinnur einnig við heilun og spámiðlun.
20.00 Kynning á dagskrá, námskeiðum og þeim sem vinna
Miðvikudagur til laugardags 15. - 18. ágúst
07.30 Ganga eða sund
08.00 Morgunmatur
09.00 Hugleiðsla
10.00 Einkatímar
12.00 Hádegismatur
13.00 Námskeið/fræðsla
15.00 Einkatímar
19.00 Kvöldmatur
Sunnudagur 19. ágúst
07.30 Ganga eða sund
08.00 Morgunmatur
09.00 Hugleiðsla
10.00 Einkatímar
12.00 Kveðjustund
Í boði verða t.d. námskeið um drauma, englaspil, orkusteina fyrir hjartað, jurtir og hjartans mál.
Farið verður að upplifa álfa og aðrar náttúruverur við Húnavelli. Einnig er áætlað að fara í Borgarvirki og hugleiða þar, og Lilja Petra býður upp á ferð í Vatnsdalshóla þar sem verður hugleitt, tengt við náttúruvætti og auk þess fjallað um jarðfræði og sögu.
Við Alma erum mjög glaðar að segja frá því að Dýrðardagar verða haldnir á Húnavöllum 14. - 19. ágúst :-) Dagskráin er í smíðum, það verður nóg af áhugaverðum námskeiðum og einkatímum í boði, meira um það seinna. Gisting, matur, heilunartími, hugleiðslur, námskeið og fleira fyrir aðeins 35.000 krónur!
Sjá facebook.com/dyrdardagar
Ummæli frá því í fyrra: Sannkallaðir Dýrðardagar, góður félagsskapur, skemmtileg samvera og unaðslegt umhverfi, þúsund þakkir.....
Við Alma erum mjög glaðar að segja frá því að Dýrðardagar verða haldnir á Húnavöllum 14. - 19. ágúst :-) Dagskráin er í smíðum, það verður nóg af áhugaverðum námskeiðum og einkatímum í boði, meira um það seinna. Gisting, matur, heilunartími, hugleiðslur, námskeið og fleira fyrir aðeins 35.000 krónur! sjá facebook.com/dyrdardagar
Næsta námskeið í að lesa úr spáspilum verður haldið 19. og 24. mars í Reykjavík, skráning hjá Mímir sjá slóðina hér: http://www.mimir.is/namskeid/29224
Nánari uppl. er hér á síðunni undir flipanum námskeið og hjá mér í síma 861-2505 eða á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.
Ég er að taka niður bókanir á Englaspilanámskeið og held það um leið og næg þátttaka fæst.
Ég verð starfandi á Akureyri 2.-11. mars, ég býð upp á einkatíma og eftirfarandi námskeið ef næg þátttaka færst:
Að lesa úr spilum
Orkusteinanámskeið
Englaspilanámskeið
Sjá nánar um námskeiðin undir flipanum námskeið hér fyrir ofan. Upplýsingar í síma 861-2505 og í tölvupósti
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.