Við í þróunarhópunum mínum höfuð verð að fjalla um góðverk. Ég sett þeim fyrir að gera góðverk, mikið gekk það vel og allir voru svo ánæðir, því það að gera góðverk kemur margfalt til baka. Nú er að koma þessi vikvæmi tími sem fylgja jólunum, allt á að vera svo gott og fjölskylduvænt. Sumir eru að takast á við veikindi eða sorg. Hlúum að fólki, það kemur svo margfalt til baka. Njótið aðventunnar.
Nú eru allir steinarnnir mínir komnir inn á síðuna. Ég hef átt ánægjulega viku með hópunum mínum og hlakka mikið til vetrarstarfsins með þeim. Góða helgi
Nú er ég á leið til Akureyrar að vinna. Ég verð þar dagana 5.-8. nóv. að Strandgötu 25 jarðhæð. Ég var á Egilsstöðum fyrir skömmu síðan og gekk sú ferð mjög vel. Ég hef farið reglulega þangað í ein 5 ár. Það er gott að fara út á land að vinna, stressið er minna. Það er einmitt stressið sem er okkur hvað erfiðast. Gott ráð við stressi er að hafa Saltlampa á heimilinu þar sem við erum mest, einnig er gott að hafa Rósarkvarts og Ametyst nálægt sér og jafnvel í vasanum.